Leturstærð
Prenta síðu
Um sjóðinn

Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta er sjálfseignarstofnun sem starfar skv. lögum nr. 98/1999. Markmið með lögunum er að veita innstæðueigendum í viðskiptabönkum og sparisjóðum og viðskiptavinum fyrirtækja sem nýta sér heimildir laga til að stunda viðskipti með verðbréf lágmarksvernd gegn greiðsluerfiðleikum viðkomandi fyrirtækis í samræmi við ákvæði laganna.

Tryggingarsjóði er skipt í tvær deildir, innstæðudeild og verðbréfadeild, og ber hvorug deildin ábyrgð á skuldbindingum hinnar. Viðskiptabankar, sparisjóðir, fyrirtæki í verðbréfaþjónustu og aðrir sem nýta sér heimildir laga til að stunda viðskipti með verðbréf í samræmi við lög um verðbréfaviðskipti og hafa staðfestu hér á landi, skulu eiga
aðild að sjóðnum . Sama gildir um útibú þessara aðila innan EES og í aðildarríkjum stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu. Aðildarfyrirtæki bera ekki ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins umfram lögbundin framlög til hans.

Skv. lögum um sjóðinn skal heildareign innstæðudeildar nema a.m.k. 1% af meðaltali tryggðra innstæðna í viðskiptabönkum og sparisjóðum á næstliðnu ári og heildareign verðbréfadeildar nema a.m.k. 100 m.kr.

Tryggingarsjóður er undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins.

Starfandi framkvæmdastjóri sjóðsins frá 1. ágúst 2009 er Sigrún Helgadóttir.

Póstfang Tryggingarsjóðs er:
Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta
Borgartún 35
105 Reykjavík
Sími: 591-0500. Fax: 591-0505
Tölvupóstfang:
tif@tif.is og tryggingarsjodur@tryggingarsjodur.is


Hér má sjá lista yfir aðila að sjóðnum  (stærð á skjali 215 kb)