Aðalfundur Tryggingarsjóðs innistæðueigenda og fjárfesta verður haldinn í fundarsal á 6. hæð Borgartúni 35, Reykjavík, mánudaginn 22. febrúar, kl. 16:00
Í samræmi við 5. gr. laga nr. 98/1999 og 5. gr. samþykkta fyrir Tryggingarsjóð innistæðueigenda og fjárfesta á sérhvert aðildarfyrirtæki rétt til setu á aðalfundi.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi, í samræmi við 6. gr. samþykkta sjóðsins.
- Skýrsla stjórnar um starfsemi Tryggingarsjóðs sl. starfsár.
- Ársreikningur Tryggingarsjóðs fyrir liðið reikningsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður fram.
- Tillögur til breytinga á samþykktum Tryggingarsjóðs, ef borist hafa.
- Lýst tilnefningu stjórnar.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og áheyrnarfulltrúa fyrir næsta starfsár.
- Kosning löggilds endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
- Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem eru upp borin.
Ná í pdf skjal
(28 kb)