Þann 22. apríl 2010 tók Fjármálaeftirlitið ákvörðun um að taka yfir vald stofnfjáreigendafundar Byrs sparisjóðs og skipa sjóðnum bráðabirgðastjórn. Það er álit Fjármálaeftirlitsins að sama dag hafi Byr sparisjóður ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæðna tiltekinna reikninga, verðbréfa eða reiðufé þeirra viðskiptavina sem þess kröfðust. Samkvæmt 9. gr. laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta nr. 98/1999 hefur vegna ofangreindra tilvika stofnast til greiðsluskyldu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta gagnvart viðskiptavinum Byrs sparisjóðs sem ekki hafa fengið greiddar innstæður sínar og andvirði verðbréfa, í samræmi við ákvæði laganna.
Þeim sem hagsmuna eiga að gæta er bent á að frekari upplýsingar er að finna í lögum nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta með síðari breytingum og reglugerð nr. 120/2000 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta með síðari breytingum. Á næstunni verður gefin út innköllun þar sem þeim, sem telja sig eiga réttindi hjá tryggingarsjóðnum, gefst færi á að lýsa þeim réttindum sínum innan tiltekins tímafrests.