Leturstærð
Prenta síðu
Fréttir

Tilkynning frá Tryggingasjóði innstæðueigenda og fjárfesta

Skrifað 5.11.2008 Kl.09:24

Fjármálaeftirlitið hefur í dag tilkynnt að þann 31. október hafi stofnunin fengið staðfestingu á því að Glitnir banki hf. hafi ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði tiltekinna heildsöluinnlána í Bretlandi þann 3. október 2008. Þetta álit Fjármálaeftirlitsins er gefið út með stoð í 1. og 2. mgr. 9. gr. laga nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingarkerfi fyrir fjárfesta. Að fengnu þessu áliti Fjármálaeftirlitsins er því hér með lýst yfir að stofnast hefur skylda Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta til greiðslu til innstæðueigenda ákveðinna heildsöluinnlána Glitnis banka hf. í Bretlandi.

Enn hefur ekki verið ákveðið hvernig útgreiðslu úr sjóðnum verður háttað. Þeim sem hagsmuna eiga að gæta er bent á að frekari upplýsingar er að finna í lögum nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta með síðari bretingum og reglugerð nr. 120/2000 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta með síðari breytingum. Þá eru ýmsar gagnlegar upplýsingar að finna á vefsíðu sjóðsins á slóðinni www.tryggingarsjodur.is


Reykjavík, 4. nóvember 2008
Stjórn Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta