Á umsóknareyðublaði vegna bóta úr Tryggingarsjóði er að finna eftirfarandi yfirlýsingu. „Komi til greiðslu úr Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta, er mér ljóst að samkvæmt 3. mgr. 10. gr. laga nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, yfirtekur sjóðurinn kröfu mína á hendur hlutaðeigandi banka/sparisjóði eða þrotabúi, sem þeirri greiðslu nemur. Með viðtöku greiðslu frá Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta framsel ég því kröfu mína á hendur hlutaðeigandi banka/sparisjóði eða þrotabúi sem þeirri greiðslu nemur.“ Af gefnu tilefni er rétt að árétta að framsalið á aðeins við um þá upphæð sem Tryggingarsjóður innir af hendi en innstæðueigandi heldur rétti sínum til að krefja hlutaðeigandi banka/sparisjóð eða þrotabú um þá upphæð sem er umfram það sem Tryggingarsjóður greiðir.