Leturstærð
Prenta síðu
Fréttir

Tilkynning stjórnar TIF til kröfuhafa um greiðslur úr innstæðudeild sjóðsins í kjölfar hruns íslensku bankanna haustið 2008 og s

Skrifað 7.10.2011 Kl.14:40

Stjórn Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta (TIF eða sjóðurinn) hefur gefið út ákvörðun dags. 8. september 2011 um hvernig greiðslum úr innstæðudeild sjóðsins verður háttað í kjölfar hruns íslensku bankanna haustið 2008 og síðar. Ákvörðunin hefur verið birt í heild sinni á heimasíðu sjóðsins www.tif.is og vísast til hennar til skýringar og fyllingar á þeim upplýsingum sem hér fara á eftir....

Skýrslur vegna iðgjalds í innstæðudeild

Skrifað 5.8.2011 Kl.16:25

Skýrslur ásamt leiðbeiningum vegna greiðslu iðgjalds í sjálfstæða innstæðudeild fyrir fyrsta og annan ársfjórðung er nú aðgengilegar á heimasíðu TIF, sjá undir flipanum "Iðgjöld í innstæðudeild 2011".

Lög nr. 55/2011 samþykkt á Alþingi

Skrifað 17.7.2011 Kl.15:43

Hinn 31. maí 2011 voru samþykkt á Alþingi lög nr. 55/2011 um breytingu á lögum nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta með síðari breytingum. Með gildistöku hinna nýju laga bættist ákvæði til bráðabirgða inn í lögin, en ekki náðist að afgreiða nýtt heildarfrumvarp um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta (sbr. þskj. 268 – 237. mál á 139. löggjafarþingi ...

Aðalfundur Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta verður haldinn 31. mars. 2011

Skrifað 10.3.2011 Kl.12:27

Aðalfundur Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta (TIF) verður haldinn að Borgartúni 35, Reykjavík, í fundarsal á 6. hæð, fimmtudaginn 31. mars, kl. 16:00. Í samræmi við 5. gr. laga nr. 98/1999 og 5. gr. samþykkta fyrir TIF á sérhvert aðildarfyrirtæki rétt til setu á aðalfundi. Dagskrá fundarins er eftirfarandi, í samræmi við 6. gr. samþykkta sjóðsins: Skýrsla stjórnar um starfsemi Trygginga...

Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta - Ársreikningur 2010

Skrifað 28.2.2011 Kl.15:46

Hægt er að nálgast ársreikning sjóðsins fyrir árið 2010 hér:  Ársreikningur Tryggingarsjóðs 2010 (pdf stærð: 713 kb)

Tilkynning vegna VBS fjárfestingarbanka hf.

Skrifað 18.5.2010 Kl.12:39

Þann 3. mars 2010 tók Fjármálaeftirlitið ákvörðun um að taka yfir vald hluthafafundar VBS fjárfestingarbanka hf. og skipa bankanum bráðabirgðastjórn. Það er álit Fjármálaeftirlitsins að sama dag hafi VBS fjárfestingarbanki hf. ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði verðbréfa eða reiðufé þeirra viðskiptavina sem þess kröfðust. Samkvæmt 9. gr. laga um innstæðutryggingar og tryggingak...

Tilkynning vegna Byrs sparisjóðs

Skrifað 18.5.2010 Kl.12:39

Þann 22. apríl 2010 tók Fjármálaeftirlitið ákvörðun um að taka yfir vald stofnfjáreigendafundar Byrs sparisjóðs og skipa sjóðnum bráðabirgðastjórn. Það er álit Fjármálaeftirlitsins að sama dag hafi Byr sparisjóður ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæðna tiltekinna reikninga, verðbréfa eða reiðufé þeirra viðskiptavina sem þess kröfðust. Samkvæmt 9. gr. laga um innstæðutrygg...

Tilkynning vegna Sparisjóðsins í Keflavík

Skrifað 18.5.2010 Kl.12:38

Þann 22. apríl 2010 tók Fjármálaeftirlitið ákvörðun um að taka yfir vald stofnfjáreigendafundar Sparisjóðsins í Keflavík og skipa sjóðnum bráðabirgðastjórn. Það er álit Fjármálaeftirlitsins að sama dag hafi Sparisjóðurinn í Keflavík ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæðna tiltekinna reikninga, verðbréfa eða reiðufé þeirra viðskiptavina sem þess kröfðust. Samkvæmt 9. gr. la...

Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta - Ársreikningur 2009

Skrifað 1.3.2010 Kl.15:20

Hægt er að nálgast ársreikning sjóðsins fyrir árið 2009 hér: Ársreikningur Tryggingarsjóðs 2009 (pdf stærð: 2,491 mb)

Aðalfundur Tryggingarsjóðs verður haldinn 22. febrúar 2010

Skrifað 18.2.2010 Kl.16:40

Aðalfundur Tryggingarsjóðs innistæðueigenda og fjárfesta verður haldinn í fundarsal á 6. hæð Borgartúni 35, Reykjavík, mánudaginn 22. febrúar, kl. 16:00Í samræmi við 5. gr. laga nr. 98/1999 og 5. gr. samþykkta fyrir Tryggingarsjóð innistæðueigenda og fjárfesta á sérhvert aðildarfyrirtæki rétt til setu á aðalfundi.Dagskrá fundarins er eftirfarandi, í samræmi við 6. gr. samþykkta sjóðsins.Skýrsla st...