Leturstærð
Prenta síðu
Iðgjöld 2011

Hinn 31. maí 2011 voru samþykkt á Alþingi lög nr. 55/2011 um breytingu á lögum nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta með síðari breytingum. http://www.althingi.is/altext/139/s/1585.html

Með lögunum er aðildarfélögum innstæðudeildar á árinu 2011 gert að greiða í sjálfstæða deild iðgjald í samræmi við ákvæði  frumvarps efnahags- og viðskiptaráðherra til laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta sem verið hefur í meðförum Alþingis en er ekki orðið að lögum (237. mál). Um er að ræða almennt iðgjald sem svarar til 0,3% á ári af öllum innstæðum eins og þær eru skilgreindar í lögunum, eða 0,075% á ársfjórðungslegum gjalddaga. Að auki skal greiða breytilegt iðgjald í samræmi við áhættustuðul sem Fjármálaeftirlitið gefur hverri innlánsstofnun.  

Loks er mælt fyrir um víðtækari undanþágur frá tryggingarvernd en áður hefur verið þannig að nú eru t.d. innstæður í eigu fyrirtækis þar sem fjármálafyrirtæki er meirihlutaeigandi og innstæður ríkis, sveitarfélaga, stofnana þeirra og fyrirtækja að meiri hluta í eigu opinberra aðila undanþegnar tryggingarvernd.

Gjalddagi fyrsta og annars ársfjórðungs er 1. september 2011, gjalddagi þriðja ársfjórðungs er 1. nóvember 2011 og gjalddagi fjórða ársfjórðungs er 1. mars 2012. Greiði innlánsstofnun ekki ársfjórðungslegt iðgjald á gjalddögum leggst á iðgjaldið 5% álag fyrir hvern liðinn dag umfram gjalddaga í fimm daga. Að þeim tíma liðnum eru vanskil fyrirtækisins tilkynnt til Fjármálaeftirlitsins.  

Innlánsstofnunum ber að veita sjóðnum upplýsingar eftir lok hvers ársfjórðungs um samtölu þeirra eigna og atriða sem álagningin byggist á. Upplýsingarnar eiga að vera veittar í því formi sem Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta ákveður, en innlánsstofnanir hafa fengið sent eyðublað til útfyllingar þessa efnis.

Eyðublöð til útfyllingar ásamt leiðbeiningum vegna fyrsta og annars ársfjórðungs:

 Eyðublað innheimtur innstæðudeild 2011 Q1
 Eyðublað innheimtur innstæðudeild 2011 Q2


Eyðublað til útfyllingar ásamt leiðbeiningum vegna þriðja ársfjórðungs:

 Eyðublað innheimtur innstæðudeild 2011 Q3


Eyðublað til útfyllingar ásamt leiðbeiningum vegna fjórða ársfjórðungs:

Eyðublað innheimtur innstæðudeild 2011 Q4

Síðasti skiladagur er þegar FME hefur birt áhættustuðul fyrir viðkomandi innlánsstofnun. Reikningur verður sendur í heimabanka í síðasta lagi 7 dögum fyrir gjalddaga, 1. mars 2012.