Leturstærð
Prenta síðu
Tilvísun í lög

Ísland er aðili að Evrópska efnahagssvæðinu (EES) ásamt Noregi og Liechtenstein. Sem aðili að EES hefur Ísland tekið upp allar tilskipanir Evrópusambandsins (ESB) er lúta að innri markaði fyrir fjármálaþjónustu og neytendavernd. Starfsemi tryggingarsjóðs byggir m.a. á tilskipun ESB um innlánstryggingar (94/19/EC) en tilskipunin tryggir ákveðna samræmingu í innlánstryggingarvernd innan ESB og EES.

Lög nr. 98/1999 gilda um Tryggingarsjóð. Lögin voru samþykkt frá Alþingi 27. desember 1999 og tóku gildi 1. janúar 2000. Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta var stofnaður 28. desember 1999. Samþykktir sjóðsins eru frá sama tíma. Samkvæmt lögunum eru samþykktirnar háðar samþykki viðskiptaráðherra að fenginni umsögn Fjármálaeftirlitsins.

Þann 21. febrúar 2000 setti ráðherra reglugerð nr.
120/2000 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta. Gerð var breyting á þeirri reglugerð með reglugerð nr. 864/2002 .

Viðskiptabankar og sparisjóðir eru skuldbundnir til aðildar að innstæðudeild sjóðsins og hið sama á við um útibú þessara aðila innan EES.