Text size
Print page
Útgreiðslur

Sjóðurinn er skuldbundinn til að greiða innlánseigendum ef:

· aðildarfyrirtæki er ekki fært um, að mati Fjármálaeftirlitsins, að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæðu sem viðskiptavinur hefur krafið aðildarfyrirtæki um endurgreiðslu á. Álit Fjármálaeftirlitsins skal liggja fyrir eigi síðar en þremur vikum eftir að það fær fyrst staðfestingu á að aðildarfyrirtæki hafi ekki greitt viðskiptavini.

· Bú aðildarfyrirtækis er tekið til gjaldþrotaskipta.

Fjárhæð til greiðslu

Lágmarks tryggingarfjárhæð á Íslandi er bundin gengi evru og jafngildir á hverjum tíma 20.887 evrum. Hrökkvi eignir viðkomandi deildar sjóðsins ekki til þess að greiða heildarfjárhæð tryggðra innstæðna, verðbréfa og reiðufjár í hlutaðeigandi aðildarfyrirtækjum, skal þá greiðslu úr hvorri deild skipt þannig milli kröfuhafa að krafa hvers þeirra allt að EUR 20.877 bætt að fullu en allt sem umfram er þessa fjárhæð skal bætt hlutfallslega jafnt eftir því sem eignir hvorrar deildar hrökkva til. Sjóðurinn verður ekki síðar krafinn um frekari greiðslu þótt tjón kröfuhafa hafi ekki verið bætt að fullu. Hrökkvi eignir sjóðsins ekki til og stjórn hans telur til þess brýna ástæðu er henni heimilt að taka lán til að greiða kröfuhöfum. Komi til greiðslu úr sjóðnum yfirtekur hann kröfu kröfuhafa á hendur hlutaðeigandi aðildarfyrirtæki eða þrotabúi.

Krafa skal reiknuð miðað við eign viðskiptamanna aðildarfyrirtækis þann dag sem Fjármálaeftirlitið gefur út álit, eða þann dag sem úrskurður er kveðinn upp um töku bús aðildarfyrirtækis til gjaldþrotaskipta. Miða skal við þann dag sem fyrr kemur upp. Sjóðnum er heimilt að nýta sér kröfur viðkomandi aðildarfyrirtækis á hendur viðskiptamanni til skuldajafnaðar gegn kröfu viðskiptamanns á greiðslu andvirðis innstæðu.

Greiðslur og greiðslufrestur:

Hvíli greiðsluskylda á sjóðnum gagnvart innstæðueiganda ber að inna greiðslu af hendi eigi síðar en þremur mánuðum frá því að álit Fjármálaeftirlitsins liggur fyrir,eða úrskurður hefur verið kveðinn upp um töku bús aðildarfyrirtækis til gjaldþrotaskipta. Hvíli greiðsluskylda á sjóðnum gagnvart viðskiptavini aðildarfyrirtækis í tengslum við viðskipti með verðbréf ber að inna greiðslu af hendi eigi síðar en þremur mánuðum eftir að lögmæti og fjárhæð kröfu er staðfest. Viðskiptaráðherra getur við sérstakar aðstæður, að fengnu áliti Fjármálaeftirlitsins, veitt sjóðnum allt að þriggja mánaða frest til viðbótar við fyrri frest. Viðskiptaráðherra er, að fengnu áliti Fjármálaeftirlitsins, heimilt að framlengja frest til að greiða innstæðueigendum einu sinni eða tvisvar í viðbót, í hvort sinn að hámarki um þrjá mánuði.


Takmarkanir á greiðslum:

Sjóðnum er heimilt við endurgreiðslu andvirðis innstæðu úr innstæðudeild að inna greiðsluna af hendi í samræmi við skilmála er gilda um innstæðu eða verðbréf, t.d. hvað varðar binditíma, uppsögn og þess háttar. Ávallt skal heimilt að endurgreiða andvirði innstæðu, verðbréfa eða reiðufjár í íslenskum krónum, óháð því hvort það hefur í öndverðu verið í annarri mynt. Sjóðnum er heimilt að nýta sér kröfur viðkomandi fjármálafyrirtækis á hendur viðskiptamanni til skuldajafnaðar gegn kröfu viðskiptamanns á greiðslu andvirðis innstæðu .

Hvað er tryggir sjóðurinn:

Sjóðurinn tryggir innstæður, verðbréf og reiðufé. Með innstæðu er átt við innstæðu sem tilkomin er vegna innláns eða millifærslu í hefðbundinni almennri bankastarfsemi og viðskiptabanka eða sparisjóði ber að endurgreiðasamkvæmt skilmálum er gilda samkvæmt lögum eða samningum. Tryggingin nær hins vegar ekki til skuldabréfa, víxla eða annarra krafna sem útgefnar eru af viðskiptabanka eða sparisjóði í formi verðbréfa. Með verðbréfum er átt við verðbréf sem eru í vörslu, umsjón eða umsýslu aðildarfyrirtækis og því ber að endurgreiða eða standa skil á samkvæmt skilmálum er gilda um samskipti aðildarfyrirtækis og fjárfestis samkvæmt lögum eða samningum. Með reiðufé er átt við innborgað reiðufé fjárfestis til aðildarfyrirtækis í tengslum við viðskipti með verðbréf.

Undanskilin tryggingu eru innstæður, verðbréf og reiðufé í eigu aðildarfyrirtækja, svo og móður- og dótturfyrirtækja þeirra, fyrir þeirra eigin reikning og innstæður, verðbréf og reiðufé sem tengjast málum þar sem sakfellt hefur verið fyrir peningaþvætti.


Séu innlán í útibúum erlendis mun sjóðurinn eiga náið samstarf við þarlenda tryggingarsjóði til að tryggja skilvirkni við afgreiðslu bóta. Í því sambandi hefur sjóðurinn gert samstarfssamninga við erlenda tryggingarsjóði.